Við undirrituð skorum á Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kópavogsbæ að finna í sameiningu lausn sem gerir Tónlistarsafni Íslands kleift að starfa áfram að því nauðsynlega menningarstarfi sem það sinnir.

Engin önnur stofnun í landinu sinnir tónmenningunni með þeim hætti sem safnið gerir og allir sem til þekkja vita hverju það hefur fengið áorkað; í mörgum tilfellum bjargað frá glötun ómetanlegum menningarverðmætum.

Fyrirliggjandi tillaga Kópavogsbæjar um að skera Tónlistarsafnið niður í eitt stöðugildi, loka húsnæði þess og hætta sýningarhaldi er atlaga að safninu og jafngildir í raun því að starfsemin leggst af.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Kópavogsbær, sem í sameiningu komu safninu á fót, mega ekki víkja sér undan ábyrgð nú án þess að reyna til fulls að leysa vandann.